BORGARBÓKASAFNIÐ

Langar þig að ná betri tökum á íslenskunni í gegnum samveru, sköpun og leik?

smh

Borgarbókasafnið býður upp á spennandi ókeypis viðburði í haust þar sem fólk getur komið saman og æft sig í íslensku í öruggu umhverfi undir leiðsögn reyndra tungumálakennara og rithöfunda. Einstakt tækifæri fyrir þau sem vilja ná betri tökum á tungumálinu í gegnum samveru, sköpun og leik.

Samvera
Spjallað er saman í göngutúrum um Elliðaárdalinn þegar veður leyfir eða innandyra þar sem æfingin felst í að lesa saman fréttir á auðskiljanlegri íslensku um það sem hæst ber í þjóðfélaginu hverju sinni. 

Staðsetning: Borgarbókasafnið Gerðubergi 
Tímasetning: Alla föstudaga kl. 11:00 –13:00. 
 

Spjöllum með hreim
Skipt er upp í hópa eftir getustigi. Spiluð eru borðspil, spjallað er um bókmenntir og farið í safnaheimsóknir. 

Staðsetning: Borgarbókasafnið Grófinni
Tímasetning: Alla laugardaga kl. 11:30-13:30

Samljóða
Opnar ritsmiðjur fyrir þau sem vilja rækta tengsl sín við íslenska tungu með skapandi hætti undir leiðsögn þriggja rithöfunda; Karólínu Rós Ólafsdóttur, Maó Alheimsdóttur og Marjón. 

Staðsetning: Borgarbókasafnið Grófinni
Tímasetning: Alla miðvikudaga kl. 16:30-18:00

Lopi og orð
Notalegar stundir fyrir þau sem hafa gaman af handverki og vilja æfa sig að tala íslensku í afslappaðri og notalegri stemningu á bókasafninu. Á vegum Huldumáls, félags stúdenta í íslensku sem öðru máli. 

Staðsetning: Borgarbókasafnið Grófinni
Tímasetning: Einn sunnudag í mánuði frá kl. 15:00-16:30
 

Hægt er að fylgjast með dagskránni í viðburðatali hér á heimasíðunni eða á Facebook síðu Borgarbókasafnsins.

Þátttaka er ókeypis, öll velkomin, jafnt byrjendur sem lengra komin. Engin skráning!
 

Nánari upplýsingar veitir:

Fanny Sanne Sissoko, verkefnastjóri inngildingar og fræðslu 
fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is | 411 6148