Samvera
Samvera eru vikulegir viðburðir sem sameina fólk sem er að læra íslensku og fólk með íslensku sem móðurmál til að spjalla, kynnast og læra hver af öðrum.
Alla föstudaga 4. september - 4. desember, kl. 11.00 til 13.00, Gerðuberg

Saman kynnumst við yfir kaffibolla og spjöllum til að æfa okkur í tungumálinu í öruggu og vinalegu umhverfi eða bara til að kynnast nýju fólki. Stundum förum við í léttan göngutúr í nágrenninu og í Elliðaárdalnum.
Þegar veðrið er mjög slæmt erum við inni til að lesa fréttir á auðskiljanlegri íslensku, ræða um hvað er að gerast á Íslandi og læra um mikilvæg málefni sem gætu haft áhrif á okkur. Einnig verður í boði að spila borðspil.
Bókasafnið er á efri hæðinni í húsi við Gerðuberg 3-5 í Breiðholti.
Strætóar: 3, 4, 12, 17 (stoppistöð: FB).
Viðburðirnir eru leiddir af kennurum í íslensku sem annað mál.
Þátttaka ókeypis, engin skráning, bara mæta.
Frekari upplýsingar
Fanny Sissoko, Verkefnastjóri inngildingar og fræðslu
fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is
Samvera er styrkt af Þróunarsjóði innflytjenda.
Samljóða
Skapandi Ritsmiðjur ætlaðar öllum sem vilja rækta tengsl sín við íslenska tungu með skapandi hætti.
Alla miðvikudaga, 9. september - 25. nóvember, kl. 16:30-18:00 - Grófin
Spjöllum með hreim
Fjölbreyttar samverustundir fyrir þau sem vilja æfa sig að tala íslensku í vinalegu umhverfi.
Alla laugardaga, 5. september - 12 desember, kl. 11:30-13:30, Grófin.