Lopi og orð
Langar þig að hitta annað prjónaáhugafólk og æfa þig í íslensku í afslappaðri stemningu? Ert þú íslenskumælandi sem elskar handverk, vilt hitta nýtt fólk og deila prjónaþekkingu þinni með öðrum?

Lopi og Orð eru notalegar stundir þar sem öll sem hafa gaman af handverki eins og prjóni, hekli og útsaumi og hafa grunnþekkingu í íslensku eru velkomin. Hugmyndin á bak við viðburðinn er að skapa rými þar sem íslenskunemendur geta æft sig að tala málið og tengst íslenskri menningu í afslappaðri og notalegri stemningu.
Við munum hafa kaffi/te fyrir öll, prjónauppskriftir og orðaforðablað.
Við hittumst á sunnudögum einu sinni á mánuði, kl. 15:00 til 16:30, á 2. hæð í Grófinni
- Sunnudagur 13. september
- Sunnudagur 11. október
- Sunnudagur 8. nóvember
- Sunnudagur 13. desember
Íslenskumælandi eru einnig hvött til að vera með okkur, spjalla við þátttakendur og deila hannyrðaþekkingu sinni með öðrum. Þó leyfilegt sé að grípa til enskunnar eru þátttakendur á öllum getustigum hvattir til að nota íslensku sem aðal samskiptatungumálið á viðburðunum. Ráð er gert fyrir að þátttakendur sýni hver öðrum þolinmæði, sérstaklega þeim sem eru enn að þróast í íslensku en eru að gera sitt besta.
Þessi viðburður er á vegum Huldumáls, félag stúdenta í Íslensku sem öðru máli.
Hafa samband við: huldumal@hi.is
Fyrirvari: Allir textarnir eru þýddir af nemendunum í Íslensku sem öðru mál, ef eitthvað er óljóst eða ekki skynsamlegt endilega sendið okkur tölvupóst eða lesið upplýsingar á ensku.