BORGARBÓKASAFNIÐ

Ertu með hugmynd að áhugaverðu verkefni, t.d. tónleikum, skapandi smiðju fyrir börn, nýsköpun sem krefst samfélagslegrar þátttöku eða öðru spennandi, en vantar húsnæði því salir eru dýrir og stofan þín allt of lítil?
Ef verkefnið þitt fellur vel að gildum og áherslum Borgarbókasafnsins hvetjum við þig til að leggja inn umsókn um samstarf með því að fylla út form hér á heimasíðunni okkar. Við getum boðið fjölbreytta aðstöðu til viðburðahalds og veitt aðstoð við kynningarmál, þér að kostnaðarlausu, svo lengi sem um er að ræða ókeypis viðburði sem standa öllum til boða.
Margar minni hugmyndir, sem hafa byrjað á Borgarbókasafninu á síðustu árum, hafa náð flugi og því hvetjum við rithöfunda, listafólk og þau
sem vinna að samfélagstengdum verkefnum að skoða þennan möguleika.
Tilvalið er að sækja um styrk fyrir verkefninu í viðeigandi sjóði og þess má geta að Reykjavíkurborg styrkir ýmis konar menningar- og samfélagsverkefni. Opið er fyrir umsóknir til 30. september svo nú er bara að bretta upp ermar, í von um að góð hugmynd verði að veruleika.
Smelltu hér til að sækja um styrk hjá Reykjavíkurborg.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is